Facebook Linkar

föstudagur, mars 20, 2009

Smáatriði sem fara í taugarnar á mér

Vodafone - Rukka leigu upp á 350 kall fyrir dsl sjónvarpsmótakara sem ég þarf að borga 790kr fyrir í áskrift aukalega og svo 690 kr tryggingargjald á ári. Auglýsing segir 790kr en í raun kostar þetta þig 1200 kr á mánuði að fá ADSL Sjónvarp hjá Vondafone. Það er munur um 410 kr á mánuði! Ergo ekki fá þér sjónvarp hjá vodafone nema þú neyðist til þess.

Heimabanki Kaupþings - Það er gjörsamlega ómögulegt að skoða reikninga sína þarna. Þeir nota javascript til að posta beiðnum af listanum sem kemur þegar þú hefur valið þér dagsetningar reikninga. Þú getur því ekki haldið t.a.m control inni og opnað alla reikninga í sér flipa í browsernum. Þegar þú reynir svo að fara til baka úr reikningi yfir í yfirlitið þá kemur alltaf spurning um það hvort þú viljir endursenda beiðni. Þetta er handónýtt helvítis drasl!

Þjóðskrá og upplýsingakerfi sem nota hana - Ég skráði mig inn til landsins í Ágúst 2008. Í Desember 2008 skráði ég mig svo í Skálagerðið! Samt er enn mörg kerfi sem halda að ég búí í Danmörku. Common! Þetta er ótrúlega lélegt! Ég var 18 ára þegar ég fyrst útfærði scriptu sem las inn þjóðskráarupload frá Skýrr í gegnum ftp og parsaði upplýsingarnar inn í gagnagrunn miðasölukerfisins sem ég bjó til, fyrir að verða 9 árum síðan! Þetta á ekki að sjást. Sérstaklega fór þetta í taugarnar á mér þegar ég skráði mig inn á rafræna neytendastofu til að kvarta yfir vodafone. Opinber vefur segir mér að ég sé búsettur í Danmörku!

Mikið er gott að fá útrás fyrir svona hluti á bloggi.

fimmtudagur, mars 19, 2009

Fimmtudagsmáltíðin út önnina


Svona verður þetta hjá mér næstkomandi fimmtudaga.

Hamborgari og internet á Café Ólver, 500 kall!

miðvikudagur, mars 18, 2009

ÖSE á Íslandi

Ég fagna komu ÖSE til Íslands til þess að fylgjast með kosningum.
Ég fagna þess að núna verður ekki lengur hægt að slá ryki í augu Íslendinga né útlendinga með það að hér sé engin spilling. Það þýðir ekkert að staðhæfa eitthvað svona, það er lang farsælast að hafa eftirlitsferla stöðugt í gangi óháð væntu spillingastigi.

... Ég vona bara að við séum ekki að borga fyrir þjónustu ÖSE.

Niðurfærsla skulda

Sem eigandi peninga í litlu magni og skulda frá LÍN þá verð ég bara að impra á því að afnám bindiskyldu á verðtryggðum reikningum hlýtur að skila sér í aukinni innlendri neyslu. Það hjálpar eflaust líka hópi fólks að borga skuldir sínar.

Ef skuldir verða eitthvað færðar niður, þá á að gera það yfir línuna en samt með hámarki. Semsagt, komið til móts við þá sem eiga peninga með að losa um þá, og afskrifið allar tegundir skulda, ekki bara skuldir færðar í nýju bankana!

Sem dæmi, ef að lækkun skulda verður 20% á línuna þá þarf hámark á niðurfærsluna, segjum 3 milljón krónur per kennitölu. Ég krefst þess þá að LíN skuldin mín færist niður um 20%, sem er töluvert minna en 3 milljónir!

sunnudagur, mars 15, 2009

Ísland hf

Í kjölfar prófkjara þá ætla ég að varpa fram Íslandi hf. Þetta er hugmynd sem er eflaust frekar spes að setja núna fram í brunarústum frjálshyggju. En Ísland hf er nokkurnveginn svona:

Hver einasti ríkisborgari á jafnan hlut í Íslandi. Ef það er hagnaður af rekstri ríkisins þá er greiddur út arður til allra hluthafa. Ekki er hægt að selja, kaupa hlut eða taka veð í honum að neinu leiti og bannað með öllu að breyta því seinna meir.

Lífeyrissjóðskerfi landsins er svo einfaldað þannig að hver hluthafi kaupir í skuldabréfasjóði ríkisins í stað þess að leggja inn á frjálsan lífeyrissjóð. Þannig fjármagnar hver einstaklingur rekstur Íslands hf sem hann á hlut í á sem hagkvæmastan og einfaldasta máta.

Við þetta þá yrði það hagur allra að Íslandi hf gangi sem best og þingmenn og ráðherrar þurfa að hugsa sig tvisvar um áður en þeir spreða, hvort væri betra að spreða í eitthvað eða geta greitt út meiri arð til kjósenda á næsta ári.

Það er gaman að hugsa út fyrir kassann, verðandi mögulegir þingmenn þurfa að gera það og reyna að hugsa í lausnum. Frambjóðendur sem fara bara með tuggur um að ná niður verðbólgu og lækka stýrivexti eru ekki að setja fram hugmyndir, það er einfaldlega að endurtaka vandamálið!

föstudagur, mars 13, 2009

Mastersverkefnið

Líkt og vonandi margir sem mig þekkja vita, þá hef ég verið að vinna að mastersverkefni undanfarna mánuði. Fáir vita þó nákvæmlega hvað það snýst um. Þessi færsla er tilraun til þess að hafa það aðeins meira á hreinu.

Í fyrstu smá forsaga:
Ég lærði nokkuð um þýðendur, smíði forritunarmála og notkun umdæmismála (mín þýðing af domain specific language) til að búa til forrit þegar ég var úti í SDU. Þegar ég kom heim til Íslands í eitt skiptið þá talaði ég við Kristján varðandi mastersverkefni og leiddi það til þess að ég ræddi við CCP.

CCP höfðu gert spilaleik kallaðan Eve the card game sem þeim langaði að fá á tölvutækt form. Datt mér þá í hug að nota umdæmismál til að lýsa leiknum og út frá lýsingu einni saman búa til keyranleg tilvik af leiknum í tölvu. Ætlunin var að CCP myndi láta mig fá forritara til aðstoðar svo ég taldi þetta allveg geranlegt.

Eitt leyddi af öðru og samskipti við CCP urðu þess eðlis að ég ákvað að byrja á að gera spilaleik af öðrum meiði til að byrja með, og nota svo þá vinnu til að gera Eve the card game seinna meir. Sá spilaleikur sem varð fyrir valinu var Póker.



Nú er kannski kominn tími á rannsóknarspurninguna:
Hvert er hlutfall fyrirhafnar milli þess að gera ákveðna hugbúnaðarlausn og þess að búa til umdæmismál fyrir þá hugbúnaðarlausn, sem svo má nota til þess að búa sjálfkrafa til sömu hugbúnaðarlausn og svipaðar hugbúnaðarlausnir.
Athugið, að vanalega eru öll dæmi um umdæmislausnir sértækar á tæknilegu sviði, þ.e.a.s, umdæmismál sem auðveldar það að búa til gagnasöfn, umdæmismál sem auðveldar það að búa til viðmót, o.s.fv. Það eru mun færri dæmi um umdæmismál sem hjálpar til við að gera lausn sem krefst viðmóts, gagnvirkni, regluverks, o.s.fv.



Það kom svo á daginn að það að forrita Póker rétt, með gagnvirkni, grafísku viðmóti, spilareglum og öllu heila var töluverð vinna. Í dag hef ég sæmilega kláraða lausn af því vandamáli útfærða í C#. Þetta hefur tekið mikinn tíma. Ég er loksins að komast á skref 2 sem er það að búa til umdæmismál út frá því sem ég hef forritað. Kóðinn sem ég hef á bakvið pókerinn slagar í kringum 1500 línur og þó hef ég endurskrifað þann kóða nokkrum sinnum og notað bestu tól til þess að gera hann af sem mestum gæðum.

Það hefur farið nokkur tími í að skoða lausnir sem hjálpa til við að búa til umdæmismál og varpa því máli svo yfir í kóða. Þær helstu eru Xtext og openArchitectureWare, ANTLR og stringTemplate, DSL Tools, Oslo og Irony

Ég hef enn ekki tekið endanlega ákvörðun hvaða tól ég ætla að nota, en þó er ég farinn að hallast að AntLR og StringTemplate þar sem þetta er lang þroskaðasta og hreinasta aðferðin. Oslo er í betu, DSL tools er grafískt og viðbjóðslegt og oAW er hreinlega of flókið, fyrirferðamikið og svo er það að leysast upp í undirverkefni innan Eclipse. Irony er reyndar lítið og töff, en mögulega of háð c#.

Það skal athugast að ég ætla mér að búa til mál sem er óháð keyrsluútfærslu, þ.e.a.s, ef ég skilgreini póker í mínu máli, þá vil ég geta varpað því í aðrar útfærslur en bara c# útfærsluna sem ég á uppkast að. Þessvegna er ég að gera það sem kallast á ensku "External textual DSL", en umdæmismál má líka hafa innbyggð í hugbúnaðarlausn, en þá er það vanalega túlkað í keyrslu þeirrar lausnar.

Þau sem gátu skilið þessa bloggfærslu hafa þá núna getað glöggvað aðeins inn í minn skrítna heim og skilja þá aðeins betur hvað ég er að skoða í mínu mastersverkefni.

mánudagur, mars 09, 2009

Minn kosningarlisti í Reykjavík

Svona kaus ég fulltrúa S í Rvk:

1. Jóhanna Sigurðardóttir
2. Jón Baldvin Hannibalsson
3. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
4. Mörður Árnason
5. Anna Pála Sverrisdóttir
6. Dofri Hermannsson
7. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir
8. Pétur Tyrfingsson

fimmtudagur, mars 05, 2009

Fixing NMI: Parity Check/ Memory Parity Error BSOD



Ensure your memory is OK.

If your memory is not corrupted, run scandisk on your system partition with the /r parameter.
To do that, either plug your hard-drive to another computer or make a proper boot-disk like UBCD4Win.

If your system still has problems, and won't boot, try repairing through windows setup.
That worked for me. Seems like I got this problem due to windows trying to compress some critical files it deemed were old and rarely used. I somehow suspect that window cannot use compressed system files until it has loaded some services, of which it had already compressed some critical files.